Bílastæðin
Bílakjallarinn er opinn allann sólarhringinn og er vaktaður með öryggismyndavélum og öryggisvörslu. Vísað er í reglur bílakjallarans um almenna notkun.
Greiðsluleiðir
Bílastæðin í Kirkjusandi eru fyrir íbúa, fyrirtæki og viðskiptavini þeirra.
- Greiðsluvél
Borga í greiðsluvél á staðnum áður en farið er úr kjallaranum. Greitt er fyrir þær mínútur sem er lagt. - EasyPark
Notendur sem eru með virkan aðgang hjá EasyPark geta notað það app til að halda utan um notkun í bílakjallara Höfðatorgs. - Sjálfvirkt í bankann
Check-it sendir aldrei sektir. Ef það er ekki gengið frá greiðslu með ofangreindum leiðum fær eigandi bíls bílastæðagjaldið sent í heimabankann að viðbættu seðilgjaldi upp á kr. 130.
Engar sektir eru fyrir að greiða ekki á staðnum heldur notast við sjálfvirka skráningu og uppflettingu.
ATH! Ef bíllinn er í eigu annars aðila, eins og bílaleigu, geta gjöld bæst við frá þeim aðila sem á bílinn.
Íbúar
Íbúar eiga óframseljanlegan rétt á bílastæðum sem kemur fram í kaupsamningi fasteignar. Þar sem stæði per íbúðarhús eru ýmist jafnmörg íbúðum eða jafnvel færri eru ekki allar íbúðir með tryggðan bílastæðarétt. Sú stað getur komið upp að íbúar sem hafa víkjandi rétt á bílastæði verði sagt upp og þurfi að fara á biðlista eftir bílastæði.
Fyrirtæki í áskrift
Áskrift, mánaðargjald
Rekstraraðili hússins sér um skráningu fyrirtækja í áskrift. Það eru annars vegar ákveðinn stæðafjöldi sem fylgir leigusamning og/eða sérstakir samningar um fjölda stæða í áskrift sem er
samið sérstaklega um.
Áskriftarkvóti
Ef bílastæðakvóti fyrirtækja er orðinn fullur þá fara næstu bílar í biðröð eftir að það losni. Bílar utan kvóta falla í almenna gjaldskrá en um leið og losnar pláss færist bíll inn í kvóta sjálfvirkt og almenn rukkun stoppar, hvort sem það er í gegnum EasyPark eða gjald sem er sent í heimabanka.
Einungis er greitt fyrir þær mínútur sem bíll er utan kvóta.
Gjaldskrá
Ekki er innheimt gjald fyrir fyrstu 15 mínúturnar.
Verð fyrir að leggja er
230 kr. á klst.
Greitt er fyrir þær mínútur sem lagt er.
Sólahringspassi íbúar - (24/7)
9.000 ISK
Kvöldpassi íbúar - (16:00 - 10:00)
3.000 ISK
Dagpassi - (08:00 - 17:00)
6.600 ISK
Sólahringspassi fyrirtæki - (24/7)
11.500 ISK
Þjónustuver Checkit er opið alla virka daga milli 9 og 16 og svarar öllum fyrirspurnum í gegnum tölvupóstinn checkit@checkit.is