Reglur húsfélagsins

Rekstrarfélag bílakjallarans Kirkjusandi (RbK) samþykkti reglur fyrir reitinn á aðalfundi félagsins 19.september 2022.
Þær eru að finna hér að neðan.


Stjórnin vill sérstaklega benda á eftirfarandi:

Ekki er hægt að tryggja að áskrifendur að bílastæðaréttindum finni skilyrðislaust bílastæði undir sínu húsi á öllum tímum.Ýmsar ástæður geta valdið því að færri bílastæði séu laus eins og t.d. ólöglega lögðum ökutækjum, ökutækjum sem lagt er í tvö stæði eða að ökutæki sé ekki lagt innan íbúðarreits svo fátt eitt sé nefnt.


Bílastæði á göthæð eru skilgreind sem skammtímastæði einnig stæði fyrir fatlaða. Íbúar, gestir og viðskiptavinum skal bent á að nota stæði í bílakljallara ef ekki er um skammtímalagningu að ræða.


Í 7. og 8 grein reglna RbK segir svo:


  • Óheimilt er að leggja ökustækjum í bílastæðum á reitnum sem ekki eru með bílnúmeraplötu. Jafnframt er óheimilt að leggja ökutækjum eða búnaði sem ekki er skráningarskyldur.


  • Óheimilt er að láta hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, kerrur, báta, torgsöluhús, tjöld og aðra lausafjármundi standa í bílastæðum á reitnum.


  • Ökutækjum skal lagt innan bílastæðamerkinga, þ.e. ekki skal leggja ökutæki í tvö bílastæði, né að leggja ökutæki sem rúmast ekki innan hefðbundinnar bílastæðamerkinga.


  • RbK eða þeim sem er falið að annast umsjón með bílastæðum á reitnum skal heimilt að fjarlægja framangreind ökustæki eða lausafjármuni á kostnað eiganda þess. Lausafjármunu verður fargað á kostnað eiganda eftir atvikum.


Í 6. grein grein reglna RbK segir svo:


  • RbK skal heimilt að senda reikninga vegna leigu bílastæða í innheimtu án frekari viðvarana.


  • RbK skal heimilt að afturkalla áskriftarréttindi af aðila vegna leigu bílastæða sem hafa verið í vanskilum í þrjá mánuði eða lengur.

REGLUR REKSTRARFÉLAGS BÍLAKJALLARA KIRKJUSANDS
UM ÚTLEIGU BÍLASTÆÐA

1. gr. Inngangur

Samkvæmt ákvæðum deiliskipulags og þinglýstu samkomulagi um fyrirkomulag á uppbyggingu og

rekstri bílakjallara undir lóðunum á Kirkjusandi 2, Borgartúni 41, Hallgerðargötu 13, Hallgerðargötu

19, Hallgerðargötu 7 og Hallgerðargötu 1, skal Rekstrarfélag bílakjallara Kirkjusands (hér eftir

„Rekstrarfélagið“) setja sér reglur um útleigu bílastæða í bílakjallaranum, þar sem gert er ráð fyrir

að stór hluti bílastæðanna sé samnýtanlegur öllum á svæðinu. Reglurnar gilda einnig fyrir bílastæði

ofanjarðar sem staðsett eru innan lóðamarka lóðanna, nánar skilgreint í fylgiskjali 1.


Samkvæmt fyrrgreindu samkomulagi skal Rekstrarfélagið hafa tekjur af útleigu bílastæða til

greiðslu sameiginlegs rekstrar og viðhalds. Bílastæði eru leigð til íbúa á lóðunum, í nágrenninu,

fyrirtækja, viðskiptavina, gesta og þeirra sem vinna á svæðinu, annars vegar í áskrift og hins vegar

með innheimtu í gegnum greiðsluvélar eða smáforrit. Þá kemur fram í samþykktum

Rekstrarfélagsins að tilgangur þess sé m.a. að leigja út bílastæði til lengri og skemmri tíma og að

nýting á bílastæðum í bílakjallaranum sé háð því að greitt sé afgjald fyrir afnot stæðanna í samræmi

við gjaldskrá Rekstrarfélagsins.


Jafnframt segir í samkomulaginu að í reglum Rekstrarfélagsins skuli m.a. kveðið á um að eigendur

fasteigna á lóð fyrir ofan hafi forleigurétt að bílastæðum, þannig að fullnægt sé ákvæðum 2. mgr.

22. gr. fjöleignarhúsa nr. 26/1994.


Stefna Rekstrarfélagsins er að útleiga bílastæða standi undir öllum kostnaði við rekstur

bílakjallarans. Samnýting bílastæða er þar af leiðandi hagur eigenda fasteigna á lóðunum og

forsenda fyrir að halda kostnaði við útleigu bílastæða til eigenda fasteigna á lóðunum í lágmarki.


Reglur þessar eru settar á grundvelli umrædds samkomulags og samþykkta Rekstrarfélagsins.


2. gr. Forleiguréttur íbúða í fjöleignarhúsum og fyrirtækja

Fjöldi bílastæða í bílakjallaranum er takmarkaður samkvæmt deiliskipulagi og því þarf að útdeila

þeim niður á sem sanngjarnastan hátt. Um útleigu bílastæða gildir áskriftarréttindakerfi sem

skiptist annars vegar í A flokk og hins vegar í B flokk, sjá skilgreiningu á flokkunum í 3. gr.


a. Íbúðir. Hver íbúð í fjöleignarhúsi á lóð fyrir ofan bílakjallarann skal eiga áskriftarrétt að eigin

vali í svokölluðum A flokki að einu bílastæði. Kjósi réttindahafi í A flokki að nýta ekki

áskriftarrétt sinn þá er Rekstrarfélaginu heimilt að framselja þá tilteknu áskrift yfir á annan

aðila sem áskriftarréttindi í B flokki. Réttindahafi í A flokki, sem er ekki að nota áskriftarrétt

sinn, getur þó á hvaða tímapunkti sem er óskað eftir að nýta áskriftarrétt sinn með eins

mánaða fyrirvara, talið frá næstu mánaðamótum frá því að skrifleg tilkynning þess efnis var

send Rekstrarfélaginu.


Tilteknum íbúðum fylgja sérmerkt bílastæði samkvæmt eignaskiptayfirlýsingum og fylgir

hverju sérmerktu bílastæði kvöð um að greiða mánaðarlega áskrift af sólarhringspassa í A flokki

skv. gjaldskrá hverju sinni. Slíkar íbúðir eiga ekki áskriftarrétt að bílastæðum í A flokki umfram

sérmerktu bílastæðin.


b. Fyrirtæki. Hvert fyrirtæki á lóð fyrir ofan bílakjallarann skal eiga áskriftarrétt að dagpassa í A

flokki samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:


1) Fjöldi dagpassa í A flokki sem hvert atvinnuhús getur leigt hverju sinni skal vera í

hlutfalli við fermetra ofanjarðar sem tilheyra þeim í atvinnuhúsnæði (hlutdeild í kjallara

er ekki tekin með í fermetrafjölda), sem staðfestur er af stjórn Rekstrarfélagsins.

Eingöngu er heimilt að leigja einn dagpassa í A flokki á hverja 50 fermetra. Ef umfram

framboð er á dagpössum í A flokki verða þeir leigðir sem dagpassar í B flokki og eru þá

uppsegjanlegir með mánaðar fyrirvara, talið frá næstu mánaðarmótum frá því að

skrifleg tilkynning þess efnis berst Rekstrarfélaginu, óski rétthafi í A flokki eftir því að

nýta sinn rétt að nýju.


2) Atvinnuhúsnæði eiga rétt á að leigja eitt sérmerkt bílastæði á hverja 1000 fermetra

fyrir samnýtta fyrirtækjabíla. Sérmerkt stæði fyrir fyrirtækjabíla dragast frá kvóta

viðkomandi atvinnuhúsnæðis. Fyrir sérmerkt stæði fylgir kvöð um að greiða

mánaðarlega áskrift af sólarhringspassa fyrirtækja skv. gjaldskrá hverju sinni.


c. Aðrir. Aðrir en þeir sem taldir eru upp í a. og b. hér að ofan geta leigt áskriftarpassa í B flokki

ef réttindahafar passa í A flokki fullnýta ekki sinn rétt. Áskriftarpassar í B flokki eru

uppsegjanlegir með eins mánaða fyrirvara talið frá næstu mánaðarmótum, óski rétthafi í A

flokki eftir því að virkja sinn rétt að nýju.


3. gr. Áskriftarréttindi

a. A-flokkur

Áskriftarpassar í A flokki eru forgangspassar. Í boði er einn passi að eigin vali fyrir hverja íbúð og

dagpassar fyrir hverja 50 fermetra af útleigðu atvinnuhúsnæði skv. 2. gr. Nýti réttindahafar sér ekki

sinn passa í A flokki færist viðkomandi áskriftarpassi í B flokk, en passinn fylgir þó réttindahafanum

í A flokki. Ávallt er hægt að afturkalla passa í B flokki með eins mánaða fyrirvara frá næstu

mánaðamótum vilji viðkomandi réttindahafi í A flokki virkja sinn rétt.


Í boði eru sólarhringspassar, kvöldpassar og dagpassar.


b. B-flokkur

Áskriftarpassar í B flokki eru einungis í boði nýti réttindahafar sér ekki sína áskrift í A flokki.

Áskriftarpassar í B flokki eru því tengdir viðkomandi áskriftarpassa í A flokki og eru afturkallanlegir

með eins mánaða fyrirvara óski viðkomandi réttindahafi í A flokki eftir því að nýta rétt sinn að nýju.


Í boði eru sólarhringspassar, kvöldpassar og dagpassar.


Í forgangi í leigu á áskriftarpassa í B flokki eru íbúar í fjöleignarhúsi á lóð fyrir ofan bílakjallarann

sem og fyrirtæki sem falla undir 2.gr.b. hér að ofan. Skulu íbúar vera í forgangi gagnvart leigu á

kvöld- og sólarhringspössum og fyrirtæki í forgangi gagnvart leigu á dagpössum. Forgangur aðila á

biðlista skal reiknaður út skv. fyrirfram ákveðinni reiknireglu sem stjórn rekstrarfélags ákveður

hverju sinni. Forgangur byggir á útreiknuðum einingum og hafa þeir sem eiga flestar einingar

hæstan forgang.


4. gr. Umsjónaraðili bílastæða í bílastæðakjallara

Samkvæmt 3. mgr. 11. gr. í samþykktum Rekstrarfélagsins er heimilt að ráða utanaðkomandi aðila

til að sjá um rekstur bílakjallarans í heild eða að hluta.


Gera skal þjónustusamning milli Rekstrarfélagsins og umsjónaraðila bílastæða til að sjá m.a. um

utanumhald varðandi umsóknir og skráningu bílastæðapassa, aðgangsstýringu, viðveruskráningu,

sjálfvirka innheimtu, eftirlitskerfi, o.fl.


Rekstrarfélagið skal stuðla að því að leiðbeiningum varðandi málefni bílakjallarans sem

umsjónaraðila er falið að sinna sé miðlað til eigenda íbúða og fyrirtækja á lóðum fyrir ofan

bílakjallarann.


5.gr. Aðgangsstýring

Rekstrarfélagið skal stuðla að því að samnýting bílastæða í bílakjallara komi ekki í veg fyrir að

bílastæði séu tiltæk fyrir áskrifendur að bílastæðaréttindum. Í því skyni skal setja á fót virkt

aðgangsstýringarkerfi sem heimilar ekki viðkomandi aðgang að bílastæðum ef samnýtanlegur

bílastæðafjöldi er fullnýttur.


Komi upp aðstæður sem leiða til þess að bílastæði séu ekki tiltæk fyrir áskrifendur að

bílastæðaréttindum, s.s. ef lagt er í bílastæði þrátt fyrir aðvörun um fullnýtingu bílastæða, skal

Rekstrarfélagið leita allra tiltækra ráða, innan marka laga, til að ráða bót á ástandinu. Í því getur

m.a. falist að óheimilir bílar verði fjarlægðir á kostnað eiganda. Þá skal há sekt lögð á aðila sem

leggur í bílastæði þrátt fyrir viðvörun um fullnýtingu bílastæðafjölda.


Til að uppfylla kvaðir um samnýtingu getur stjórn Rekstrarfélags takmarkað fjölda aukapassa.


Rekstrarfélag bílakjallara getur ekki tryggt að áskrifendur að bílastæðaréttindum finni skilyrðislaust

laust bílastæði á öllum tímum. Ýmsar aðstæður geta valdið því að færri bílastæði séu laus en

aðgangsstýringarkerfi reiknar út, s.s. að bílum sé lagt illa þannig að bílastæði nýtist ekki öll eða að

ökumenn virði ekki merki um að bílakjallari sé fullur.


6.gr. Vanskil og afturköllunarheimild bílastæðaréttinda

Rekstrarfélaginu, eða þeim sem falið er umsjón bílastæðakjallara, skal heimilt að senda reikninga

vegna leigu bílastæða sem eru í vanskilum í innheimtu án frekari viðvarana. Reikningar vegna leigu

bílastæða, sem hafa verið í vanskilum í þrjá mánuði eða lengur, ber að senda í innheimtu.

Rekstrarfélaginu skal jafnframt heimilt að afturkalla áskriftarréttindi af aðila vegna leigu bílastæða

sem hafa verið í vanskilum í þrjá mánuði eða lengur.


7. gr. Tilvik þar sem ökutæki eða lausafjármunir verða fjarlægðir úr bílakjallara

Óheimilt er að leggja ökutækjum í bílastæðum bílakjallarans sem eru ekki með bílnúmeraplötur.

Jafnframt er óheimilt að leggja ökutækjum sem ekki eru skráningarskyld í bílastæðum

bílakjallarans.


Óheimilt er að láta hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, kerrur, báta, gáma, torgsöluhús, tjöld og aðra

lausafjármuni standa í bílastæðum bílakjallarans.


Rekstrarfélaginu, eða þeim sem falið er umsjón með bílastæðakjallara, skal vera heimilt að

fjarlægja framangreind ökutæki eða lausafjármuni úr bílakjallaranum á kostnað eiganda þess.

Lausafjármunum verður fargað á kostnað eiganda eftir atvikum.


8. gr. Umgengni

Rekstrarfélagið, í samráði við umsjónaraðila bílastæðakjallara, skal skilgreina nánari

umgengnishegðun vegna bílakjallarans sem gera skal sýnilegt fyrir bílastæðagesti, s.s. með skiltum

í bílakjallaranum, á vefsíðu bílakjallarans eða í smáforriti umsjónaraðila. Markmið þeirra reglna skal

m.a. stuðla að því að samnýting bílastæða sé sem skilvirkust, s.s. að virða skuli tímamörk og að

ökutækjum skuli lagt innan bílastæðamerkinga, þ.e. að ekki skuli leggja ökutæki í tvö bílastæði né

leggja ökutæki sem rúmast ekki innan hefðbundinna bílastæðamerkinga.


9. gr. Kynning á reglunum

Húsfélag hverrar lóðar sem á aðkomu að Rekstrarfélaginu ber ábyrgð á að kynna reglur þessar fyrir

eigendum fasteigna á lóðunum. Rekstrarfélaginu er jafnframt heimilt að birta reglur þessar á

vefsíðu félagsins, komi til þess að slík vefsíða verði sett á laggirnar.


10. gr. Breyting á reglunum

Stjórn Rekstrarfélagins setur reglur þessar og getur stjórn ein breytt reglum þessum samkvæmt

þeim ákvæðum sem gilda um ákvörðunartöku stjórnar í samþykktum félagsins hverju sinni.